|
Dagsetning
10. febrúar 2012
When I think of Angels

Kallið
er komið, komin er stundin,
vinaskilnaður, viðkvæm
stund.
Vinirnir kveðja, vininn sinn
látna,
er sefur nú hinn síðasta
blund.
Margs er að minnast, margt er þér
að þakka,
Guði sé lof fyrir liðna
tíð.
Margs er að minnast, margs er að
sakna,
Guð þerri tregatárin
stríðu.
Far þú í friði, friður
Gu&et
|
02.03.2009 00:32:49 / Þóra Elín
Vá, ég er ekki að trúa því að það sé farið að nálgast 2 ár síðan þú
kvaddir okkur, það kemur ekki sjaldan fyrir að mann langi til að heyra
í þér, spjalla eða athuga hvort þú sért eitthvað á leiðinni norður.
Langaði bara að skrifa smávegis hérna inná. Vonandi hefuru það gott þar
sem þú ert. Þú átt ávalt stað í hjartanu hjá okkur, og þín er sárt
saknað. hafðu það gott elsku sigurgeir, hvar sem þú ert, ég veit að þú ert að fylgjast með og passa uppá þá sem þér þótti vænt um. kv. Þóra Elín
»
26.01.2009 10:04:52 / Guðbjörg
Hann á afmæli í dag Hann á afmæli í dag Hann á afmæli hann Sigurgeir Hann á afmæli í dag
Til hamingju með daginn elsku engillinn minn, þú hefðir orðið 25 ára í dag og það er bara enginn aldur.. þú áttir allt lífið frammundan en það var bara ekki það sem að þú vildir, ég vildi að ég hefði getað hjálpað þér, því ég veit að það var margt sem þig langaði í lífinu.. En ég vona að þú munir eiga góðan afmælisdag með hinum englunum, og honum Bossa þínum auðvitað, ég bið að heilsa kallinum.. Ég sakna þín engillinn minn :'(
Ég elska þig mestast þín Guðbjörg <3
  <3 Ég Elska þig <3
»
09.01.2009 13:50:03 / Guðbjörg
I just can´t believe you´re gone, still waitin for morning to come, wanna see if the sun will rise even without you by my side When we had so much in store, tell me what is it i´m reaching for when we´re through building memories I´ll hold yesterday in They can take tomorrow and the plans we made (we made) they can take the music that we´ll never play all the broken Dreams take everything, just take it away, but they can never They can take the future that we´ll never know, they can take the places that We said we will go, all the brokens dreams take Everything, Just take it away, but they can never have yesterday You always used to say, I should Heaven know what the future holds, or least how the story (but I never believed them ´til now) I know I´ll see you again I´m sure, no it´s not selfish to ask for more One more night one more day, one more smile on your But they can´t take yesterday They can take tomorrow and the plans we made (we made) they can take the music that we´ll never play all the broken Dreams take everything, just take it away, but they can never They can take the future that we´ll never know, they can take the places that We said we will go, all the brokens dreams take Everything, Just take it away, but they can never have yesterday I thought our days would last forever (but it wasn´t our ´Cause in my mind we had so much time, but I was so wrong I can still find the strength in I´m looking back on yesterday They can take tomorrow and the plans we made (we made) they can take the music that we´ll never play all the broken Dreams take everything, just take it away, but they can never They can take the future that we´ll never know, they can take the places that We said we will go, all the brokens dreams take Everything, Just take it away, but they can never have yesterday have yesterday
Leona Lewis

»
23.10.2008 09:13:21 / Guðbjörg
Hæ engillinn minn, ég virðist vera sú eina sem að skrifa til þín, og fólk er næstum alveg hætt að koma inn á síðuna þína.. ég hef mikið pælt að skrifa til þín bara inn á minni síðu, en mér finnst líka gott að skrifa til þín hér, á þinni eigin síðu..
ég veit ekki alveg hvað ég á að segja, ég hef hugsað mikið til þín, þú hefur tvisvar komið til mín í draumi og þeir voru báðir mjög skringilegir, ég veit ekki hvort ég vilji segja frá þeim hér, ég vil eiginlega bara halda þeim fyrir mig, en ég væri til í að einhver gæti sagt mér hvað þeir þýddu, mig langar svo að geta talað við þig.. mér finnst stundum eins og þetta sé ekki raunverulegt, að þú sért farin frá mér, mig langar bara að þetta sé allt stór draumur, en því miður þá er það ekki svoleiðis. Ef ég ætti eina ósk þá myndi ég óska þess að þú værir komin til mín aftur. ég get ekki hætt að hugsa um framtíðarplönin okkar, ég get bara ekki hætt að huga um þig.. Þegar ég heyri sum lög í útvarpinu þá langar mig að öskra.. mig langar að gráta og mig langar bara svo mikið að geta hringt í þig, ég er enn með númerið þitt í símanum mínum, ég vildi bara að ég gæti hringt og heyrt röddina þína að við gætum hisst..
ég man svo vel síðasta skiptið sem við hittumst, þú komst til mín helgina áður en þú kvaddir þennan heim, það var snjór og við lékum upp á nöfum með Gloríu, annað okkar faldi sig á meðan hinn passaði að Gloría myndi ekki kíkja, svo létum við hana leita.. og hún fann okkur alltaf, þú varts svo ánægður með hana, við kúrðum og höfðum það notalegt, við ættluðum svo að hittast helgina eftir að þú kvaddir þennan heim, mig hlakkaði svo til, ég var að fara í fermingarveislu og ég gat ekki beðið eftir að fá að knúsa þig og kyssa, ég var ákveðin í að segja þér að ég væri alveg viss að þú værir sá sem að ég vildi, en það fékkst þú aldrei að vita, ég sagði þér aldrei að ég væri 100% viss um að ég vildi að við myndum yrðum 100% saman aftur, og oft þá sé ég eftir því að ég hafi bara ekki sagt þér það í gegnum símann.. ég hugsa líka oft til þess hvort það hefði breytt einhverju ef ég hefði hringt í þig aftur eftir að við töluðum saman kvöldið sem þú fórst, ég get ekki hætt að hugsa um þetta, það eina sem mig vantar eru svör, en þau get ég ekki fengið.. það er svo erfitt að sitja með allar sínar hugsanir og aldrei fá nein svör við þeim, ég veit að margir myndu bara segja mér að gleyma þessu það væri ekki til neins að leita eftir svari því ég fengi það aldrei, en ég get bara ekki hætt að hugsa um þetta..
lífið hefur ekki verið eins eftir að þú hvarfst, mér finnst ég vera öðruvísi, eins og það vanti eitthvað, það er eins og ég sé í eilífðri leit eftir einhverju meira.. eða eins og ég geti ekki fundið út úr því hverju ég sé að leita af.. mig langar bara að fá gamla lífið mitt aftur, mig langar að vera eins hamingjusöm og ég var fyrir 2 árum siðan, ég vildi að ég gæti spólað til baka, ég vildi að ég hefði getað gert marga hluti öðruvísi.. Ég vildi að ég hefði getað hjálpað þér.
Ég mun örugglega alltaf muna eftir deginum sem ég fékk fréttirnar, og ég mun alltaf muna síðustu dagana sem við vorum saman.. ég mun geyma allar þær minningar sem við áttum í hjarta mér ásamt öllum þeim myndum sem ég á af þér.. Ég held að ég geti aldrei sleppt þér alveg, þú varst og ert stór partur af þeirri manneskju sem ég er í dag, og ég myndi aldrei vilja skipta á neinu fyrir allar þær stundir sem við áttum saman..
hvíldu í friði engillinn minn
Þín Guðbjörg <3
»
07.09.2008 19:12:05 / Guðbjörg
Hæ fallegi engillinn minn, mér var hugsað til þín hef reyndar hugsað til þín og um þig síðustu daga, þú hefur komið upp í huga mér annað slagið. Ég veit að ég skrifa ekki mikið inn á síðuna til þín og til þín, ég veit bara ekki alltaf hvað ég á að segja, ég sakna þín ennþá og ég vildi að ég gæti talað við þig. Ég vildi að aðrir vildu líka skrifa meira inn á síðuna þína, mér finnst svo leiðinlegt að hún sé orðin svo tóm. Ég hugsa um tíman sem við höfðum saman, og ég sakna þess sárt, við höfðum það yfirleitt gott saman, og við gerðum svo margt. mér fannst svo leiðinlegt að við gátum ekki búið á sama stað, en svo þegar ég flutti suður til þín þá var ég yfirmig ánægð..
Þú varst fyrsta ástin mín, og ég hugsa oft um það hvort ég muni einhvern tíman elska annan strák eins mikið og ég elskaði þig, ég hef heyrt að fyrsta ástin er sú sterkasta, og það er rétt, þó svo að ég var reið eða sár út í þig stundum og þá daga sem þú áttir ekki skilið fyrirgefningu þá vildi ég alltaf vera hjá þér, ég vildi alltaf fyrirgefa þér bara ef við gætum verið saman, ég var yfirmig ástfangin af þér og ég elska þig enn, bara á annan hátt núna.
Ég hugsa oft til þess hvort ég ætti að fara til miðils til að sjá hvort að þú munir koma til mín, bara svo ég gæti fengið nokkur svör. mig langar svo að tala við þig, oft langar mig til að spóla til baka og gera suma hluti öðruvísi en þeir voru, en ég get það ekki og það gerir mig mjög leiða. ég hef ekki heyrt í mömmu þinni og pabba síðan stuttu eftir jarðaförina þegar ég sagði þeim að ég myndi flytja til Danmerkur en ég væri mikið til í að hitta þau, kannski ég komi austur næsta sumar þegar ég kem til íslands til að koma að leiðinu þínu og heimsækja mömmu þína og pabba, ég tala stundum við Bigga bróðir þinn og Eydísi, mér finnst gott að vera í sambandi við þau. Vá hvað ég sakna þín sárt núna, mér finnst þetta svo erfitt, þegar maður hugsar um allan þann tíma sem við höfðum saman og allar þær minningar sem við höfum þá sakna ég þín bara enn meira.. ég vildi að ég gæti séð þig núna, að við gætum leigt mynd saman og ég gæti kúrað í fanginu þínu, en einn dag þá mun ég gera það þegar við hittumst aftur.
vaktu yfir okkur og passaðu upp á okkur. ég sakna þín fallegi engillinn minn og mun ávalt elska þig.
Þín Guðbjörg.
»
19.05.2008 09:39:18 / Guðbjörg
Open up your eyes And wake up to a new day See the morning rise And feel the love around you You can leave all your worries I´ll be by your side I´ll light my candle for you
You will spread your wings And fly away And see the day But my love for you will last a million years But my love for you will last a million years
There´s a world for you There´s a life just waiting So go and bring your best Make it all worth living Put your weight on my shoulders If you´re feeling lost Cause I will always be there for you
You will spread your wings And fly away And see the day But my love for you will last a million years But my love for you will last a million years
Another day Another time Another life in another world But I know we´ll meet again Cause this love will never Never end
You will spread your wings And fly away And see the day But my love for you will last a million years But my love for you will last a million years
Simone, Dreams do come true.

Ég sakna þín svo sárt stundum, þú munt alltaf eiga hluta í hjarta mér fallegi engillinn minn, mér finnst þetta lag svo fallegt, ég vildi að ég hafi getað gert eitthvað, ég vildi að ég vissi hvernig þér leið, en þú faldir það gjörsamlega fyrir mér, og mér þykir það svo leitt, mig langar svo að sjá brosið þitt, sjá fallegu augun þín og bara eyða deginum með þér og Gloríu okkar. En eins og segir í laginu þá muntu fljúga um í öðru lífi sem er mikilvægara fyrir þér núna, en við munum hittast aftur seinna í öðru lífi, ást okkar mun aldrei deyja. vaktu yfir okkur á jörðinni elsku ástin mín.
þín er sárt saknað. Þín Guðbjörg
»
05.04.2008 13:38:45 / Guðbjörg
I heared some whisper ur name, but when I turned around 2 see u who it was, I notice I was alone, I realized it was my heart telling me that I MISS U
»
11.03.2008 12:47:54 / Þóra Elín
í dag er liðið 1 ár frá því þú fórst frá okkur  finnst eins og það hafi bara verið í gær sem ég fékk þær fréttir að þú værir farinn frá okkur fólk er enþá talandi um þig og maður er alltaf að rifja upp allar þessar minningar sem maður á með þér, Ég, þú Unnur Bettý og Elín Björk hangandi daman allt sumarið eiginlega frábært sumar sem ég væri alveg til í að endurtaka hafðu það gott þar sem þú ert elsku Sigurgeir við söknum þín öll svo mikið og mjög skrítið að hafa þig ekki hérna til að tala við Hvíldu í friði --þín vinkona Þóra Elín
»
28.02.2008 20:47:44 / Guðbjörg
Í dag hugsaði ég mikið til þín ástin mín.. og allar þær minningar sem við áttum saman, þar sem að ég og Lísa systir vorum að tala um stráka og afhverju þeir geti ekki verið eins og stelpur, hrósað fyrir hárið á manni eða sagt manni hversu sæt maður er í dag.. eða eftir rifrild að þeir komi eftir manni og reyni að sættast.. það eru yfirleitt stelpurnar sem að gera það.. en þá komst þú upp í hugann minn, og ég fór að hugsa út í okkar samband.. það var ekki alltaf ég sem að kom til þín.. þú komst oft til mín og talaðir við mig, eða sagðir mér að ég væri sæt eða hversu mikið þú elskaðir mig, sérstaklega síðustu mánuðina sem þú varst á lífi. Þú gafst mér inneign úr "ást í verki fyrir hana" og það var svo sætt, þú komst oft með hugmynd um að keyra eitthvert út í buskan og njóta dagsins saman.. og ég sakna þess bara svo óendanlega mikið ég sakna þess þegar að þú hringdir í mig á kvöldin áður en þú fórst að sofa bara til að bjóða góða nótt og segja að þú elskaðir mig..
ég man bara hversu mikið við vorum hrifin af hvort öðru þó svo að við hefðum átt erfitt líka, ég held mjög mikið að ef þú værir á lífi núna þá myndum við örugglega hafa fundið út úr einhverju og værum enn saman í dag, við höfðum talað um trúlofun og vorum næstum búin að framkalla hana, ég hugsaði líka um það í dag.. hugsaði einnig um öll húsin sem við skoðuðum af því að við vorum að spá í að kaupa.. ég vildi bara svo oft að ég hefði getað séð að þér hefði liðið svona illa.. vildi að ég hefði getað hjálpað meira, því mig langar svo mikið í þig til baka... þú vast æðislegur kærasti og ég mun aldrei gleyma þér.. ég vildi bara svo að ég gæti fengið annan séns.. en ég veit að það verður ekki og ég verð bara að geyma allar minnigarnar í hjarta mínu.. þú munt alltaf eiga hlut í hjarta mér fallegi engillinn minn..
ég elska þig mestast, þín Guðbjörg <33
 Ég og Sigurgeir á frönskum dögum, mjög ástfangin <33
»
26.01.2008 17:43:14 / Guðbjörg
Til hamingju með afmælið elsku engillinn minn, í dag hefðuru orðið 24 ára gamall, sem er enginn aldur.. og finnst mér svo skrítið að þú sért farinn svo fljótt.. síðasta afmælisdag þá varstu að vinna fyrir sunnan, og þar áður varstu að vinna fyrir austan.. ég man hvað mér fannst svo leiðinlegt að það leni altaf á vinnudögum hjá þér og ég var í skóla á króknum.. en þú sagðir alltaf hvað þetta er bara afmæli, við getum alltaf gert eitthvað saman.. svo í dag vil ég segja til hamingju með afmælið þitt, og ég vona að þú hafir átt góðan dag.. ég kveikti á kerti fyrir þig með mynd af þér fyrir framan, eins og mér hefur verið kennt að gera fyrir þá sem dánir eru.. til að heiðra þá.. Hann á afmæli í dag, Hann á afmæli í dag, Hann á afmæli hann Sigurgeir Hann á afmæli í dag. Til hamingju með daginn elskan mín.. ég sakna þín, Þín Guðbjörg.
»
11.01.2008 10:25:14 / Guðbjörg
Nú er komið nýtt ár og er það fyrsta árið sem er án þín.. það er svo ótrúlegt hver söknuðurinn getur verið mikill en samt getur tíminn liðið svo hratt, nú er bráðum eitt ár síðan þú kvaddir þennan heim en við sem eftir sitjum höldum áfram með okkar líf og höldum í minningarnar. þú átt bráðum afmæli og þá yrðiru 23 ára, það er enginn aldur og þú ert horfinn.. það var svo margt sem þig langaði til að gera og upplifa, ég vildi að það væri hægt.. mig langar svo að geta talað við þig og heyrt í þér, við töluðum saman á hverjum degi þegar þú bjóst fyrir sunnan og ég var að klára skólann fyrir norðan.. við töluðum ekki bara einu sinni saman á dag, það var oft og mörgum sinnum sem maður fékk hringinugu að því þér leiddist í vinnunni eða þú saknaðir mín bara, og svo er það svo skrítið að fá engar hringingar frá þér. mig dreymdi þig í nótt, ég man samt ekki alveg hvað það var en þú varst hjá mér og það sem ég man virtist vera gott.. ég trúi því og veit að þér líður vel núna, en ég vildi bara að ég gæti fengið að tala við þig, bara einu sinni enn.. mér finnst líka mjög leiðinlegt að ég geti ekki komið upp að leiði til þín, en ég mun gera það, vonandi næst þegar ég kem í heimsókn til Íslands. ég vona að þér líði vel fallegi engill, ég sakna þín sárt. Þín Guðbjörg p.s ég sé að það eru margir sem að skoða síðuna og vil ég endilega kvetja alla til að kvitta í gestabókina eða kommenta, og stelpur endilega að vera duglegar að skrifa inn á síðuna það er svo leiðinlegt þegar hún er svona tóm. læt fylgja eina mynd af Sigurgeir daginn fyrir gammlárs 2005.
»
29.12.2007 19:23:23 / Guðbjörg
.. og nýtt ár fer að líta dagsins ljós, og vona ég að það ár muni veita okkur meiri gleði en það ár sem er að líða.. það verður fyrsta árið sem verður án þín Sigurgeir og mér finnst það svo skrítið, mér finnst svo skrítið að það sé bráðum ár síðan þú fórst úr þessum heimi, mig langar svo að geta heyrt í þér einu sinni enn og fengið að segja þér hversu mikið mér þykir vænt um þig, hversu mikið þú varst fyrir mig.. þú kemur alltaf upp í hugann minn fallegi engill.. Það getur vel verið að ég sé byrjuð að reyna að byrja nýtt líf, en það þýðir ekki að ég hugsi ekki til þín og að tilfinningar mínar til þín sé horfnar, alls ekki. því að þú kemur svo oft upp í hugann minn, og margt af þessum litlum hlutum sem þú gerðir alltaf fyrir mig, sakna ég.. ég sakna þess svo mikið, mér finnst mjög leiðinlegt að ég geti ekki séð leiðið þitt eða hvað þá komið að því og verið enn nær þér.. en ég veit þú ert alltaf hjá mér, ég veit þú vakir yfir mér.. og ég veit líka að einn daginn þá munum við hittast aftur. Þegar að ég var á fásk rétt fyrir jarðaförina þína þá lét mamma þín mig fá bol af þér sem þú hafðir notað áður en þú hvarfst úr þessum heimi, ég er líka með húfuna þína og þessir hlutir frá þér held ég mikið í.. ég er líka með fullt af hlutum uppi sem þú gast mér í skóinn, eins og bangsalyklakippinu og kertið og bangsan með namminu.. allt þetta minnir mig á þig.. og ég vildi svo að ég gæti fengið annað tækifæri til að tala við þig kvöldið sem að þú dóst.. Ég vona að þú hafir haft góð jól með Bossa þetta árið, og svo vona ég að við verðum duglegri til að skrifa hér inn á síðiuna þína á komandi ári. vaktu yfir okkur og passaðu fallegi engill. Þín Guðbjörg
»
13.12.2007 12:46:46 / Guðbjörg
Elsku Sigurgeir lífið er stundum svo erfitt og það verður alltaf erfitt það er alltaf eitthvað sem kemur upp á sem að á eftir að stíga manni til höfuðs og maður verður að leysa einhver vandamál. en að missa þig er örugglega það erfiðasta sem ég hef upplifað og að það geti haft áhrif 9 mánuðum eftir að þú ert farinn, ég hef fyrir löngu gert mér grein fyrir því að þú munnt alltaf koma upp í hugann minn. Ég var úti að labba með Gloríu áðan og ég prufaði að hafa hana án snúru, hún átti bara að labba hæl án hennar, og það tókst næstum.. hún er orðin svo dugleg og hún er ótrúlega falleg. ég veit hversu mikið þér þótti vænt um hana, þú varst svo stoltur af henni og sagðir að hún væri svo klár... Sumarið sem að við bjuggum saman fór Gloría með okkur hvert sem er, hún fór með okkur á færenskadaga á ólafsvík, við keyrðum hvalfjörðinn með henni, fórum með hana með okkur á AK yfir 17 júní og bíladaga.. og tveir hundabræður á svipuðum og aldri og hún fóru eitthvað að ybba sig, en hún lét það ekki mikið á sig fá heldur svaraði hún bara fyrir sig og réð við þá báða, þú varst svo stoltur.. fólk var farið að tala um að veðja peningum á hver myndi vinna og flestir héldu með henni Gloríu okkar... hún fór líka með okkur í Ásbyrgi og heim til þín á fáskrúðsfjörð á franskadaga saman með Helenu og Emma og Þrumu hundinum þeirra, og nýja hundinum okkar honum Kjark.. sem við áttum nú ekki lengi en þér þótti sko ekki mikið minna vænna um hann, þó að það hafi verið ég sem að suðaði um annan hund. Bossa þótti þér ekki minna vænna um en hina tvo hundana sem við áttum saman, Bossi var yndislegur og ég man hversu erfitt það var að kveðja hann þegar ákvörðunin var tekin að skilja við hann. en núna ertu komin til hans aftur og vona ég að þið skemmtið ykkur vel saman, ég veit að þið fylgist með okkur hinum sem eftir erum og passið upp á okkur. Ég sakna þín fallegi engill og mun ávallt gera. Þín Guðbjörg ´
Sigurgeir og Gloría sumarið 2006, Kjarkur er líka með á myndinni  
Sigurgeir og Bossi haustið 2005. Fallegustu englar í himnaríki <33
»
25.11.2007 04:52:31 / Þóra Elín
vá hvað maður saknar þín mikið, er nú ekkert allt of dugleg að kíkja hérna inn og kvitta fyrir mig eða halda síðunni gangandi en það mun breytast stelpur við verðum að fara að láta þessa síðu ganga betur fyrir hann Sigurgeir okkar sakna hans allir óendanlega mikið. Ákvað að kasta inn smá kveðju hérna í bloggið til þín Sigurgeir minn, vonandi líður þér sem allra best þar sem þú ert, vinur minn sagði mér reyndar um daginn að þér liði vel núna og við sem eftirværum hérna þyrftum engar áhyggjur að hafa af þér, þú værir hjá okkur öllum og passaðir uppá okkur öll við sjáumst svo einhvern daginn aftur. maður veltir því svolítið fyrir sér hvernig þetta er þarna hinumeginn hjá þér, hvort þú sért með dýrmæta mustanginn þinn hjá þér sem þú varst nú svo ánægður með og það sem þú gast sagt Axel mínum frá bílnum og hvað þig hefði dreymt mikið um svona bíl, honum fannst ómetanlegt að fá að hitta þig í þetta eina eða tvö skipti sem við dróum þig eitthvað út með okkur. En Elsku Sigurgeir við söknum þín öll, kveðja, Þín vinkona Þóra Elín
»
11.10.2007 17:26:09 / Guðbjörg
Í dag eru 7 mánuðir síðan þú fórst frá mér ástin mín, síðan þú hvarfst úr þessum heimi og man ég daginn eins og þetta hafi gerst í gær, ég man líka daginn eftir þegar ég fékk fréttirnar og gleymi ég honum aldrei 10. mars 2007 var laugardagur, ég fékk sms frá þér fyrr um daginn, ég vissi um 18 leitið að þú værir byrjaður að drekka og ég ætlaði út með Júlíönu, Bjössa og Þresti þetta kvöld, ég vissi líka að þú ætlaðir í bæinn í RVK með vinnufélögunum, um 00,15 hringdir þú í mig, og töluðum við saman, þú sagðir að þú værir á leiðinni heim, ég heyrði að þú varst í bíl og spurði hvort þú værir að keyra, þú varst svolítið lengi að svara en sagðir svo ,,Nei Einar er að keyra" þú vissir að mér líkaði ekki að þú keyrðir þegar að þú varst búinn að drekka, og fékk ég einhvernmegin tilfinningu að þú værir einn, samt veit ég það ekki, en ég hugsaði um það að hringja aftur í þig þegar við kvöddumst til að vera alveg viss, en ég gerði það svo ekki, ekki datt mér í hug að þetta yrði okkar síðasta samtal. Við ætluðum að hittast helgina eftir og var mig farið að hlakka mikið til, og veit ég að þú varst líka spenntur. 11. mars 2007 er án efa versti dagur í mínu lífi, og mun ég ALDREI gleyma honum, ég var að vinna og ég hefði sent þér sms um morgunin og spurt hvernig hefði verið á djamminu, en ég fékk ekkert svar, hélt að þú værir bara sofandi eftir djammið og bjóst ekki við svari fyrr en seinni partinn, en svo hringdi bróðir þinn um hádegisbilið, ég var á leiðinni í mat, og hann sagði mér þetta, að þú værir farinn fyrir fullt og allt, hann gat ekki sagt mér allt því hann vissi svo lítið á þeim tíma, en spurði hvort ég gæti fengið foreldra mína til að sækja mig, ég gat ekki sagt neitt, ég grét bara ég vildi ekki trúa þessu, og prufaði að hringja í símann þinn en hann var slökktur, ég hringdi í pabba og hann sótti mig.. Eydís kom til mín og við grétum bara saman ég var með Júlíönu, Bjössa og Þresti seinni partinn og gat bara ekki farið heim, ég var líka með þeim dagana á eftir.. þau hjálpuðu mér mikið.. í dag bý ég í Danmörku og flutti ekki svo löngu eftir að þú dóst, planið var auðvitað aldrei að flytja út og ég veit eiginlega ekki af hverju af því var, kannski til að forðast minningar og sársauka, kannski bara til að breita um, ég veit það ekki.. en hér er ég enn.. hugsa oft um þig og hvernig það væri ef þú værir enn á lífi, oft þegar sólin skín og heiðskírt er þá hugsa ég um sumarið okkar í RVK, mig langar svo að fá það til baka, mig langar svo oft að fá þig til baka, mig langar oft að heyra röddina í þér og fá öll þessi knús frá þér, mig langar að kaupa íbúðina í Sandgerði sem við vorum að spá í að kaupa og eiga fjölskyldu með þér, en það mun aldrei verða, ég mun aldrei getað séð þig aftur né heyrt frá þér, ég mun aðeins geta haldið í allar þær minningar sem við áttum saman og það mun ég gera, ALLTAF.. Ég sakna þín svo sárt elsku ástin mín. og veit að þú ert fallegasti engill í himnarík, og þú munnt ávalt fylgja mér <33 Hvíldu í friði elsku ástin mín, við munum sjást í himnaríki þegar að minn dagur kemur.. Ég elska þig mestast (eins og við vorum alltaf svo vön að segja) og mun ávalt gera. Þín Guðbjörg Ósk.
»
Síður: 1 2
|
Missing You :*

It
|